Lán frá Menntasjóðnum
Stúdentar geta sótt um lán hjá Menntasjóðnum í gegnum ,,Mitt Lán” á heimasíðu Menntasjóðsins (www.menntasjodur.is).
Þar er einnig hægt að fylgjast með stöðu umsókna, skoða lánsáætlun og sjá gátlista yfir gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.
Umsóknarfrestir fyrir skólaárið 2020-2021:
Haustönn – 1. desember 2020
Vorönn – 5. janúar 2021
Sumarönn – 1. júní 2021
Útborganir framfærslulána
Greiðsla mánaðarlegra framfærslulána til stúdenta sem óska eftir samtímagreiðslum hefjast á eftirfarandi dagsetningum:
- Á haustönn 2020 hefjast útborganir 1. október 2020
- Á vorönn 2021 hefjast útborganir 1. febrúar 2021
- Á sumarönn 2021 hefjast útborganir 1. júlí 2021
Greiðsla framfærslulána til stúdenta sem óska eftir að fá lánið greitt eftir hverja önn hefjast á eftirfarandi tímum:
- Fyrir haustönn 2020 hefjast greiðslur í byrjun janúar 2021
- Fyrir vorönn 2021 hefjast greiðslur í byrjun maí 2021
- Fyrir sumarönn 2021 hefjast greiðslur í byrjun ágúst 2021
Útborganir skólagjaldalána
Greiðslur skólagjaldalána til stúdenta sem óska eftir fyrirframgreiðslu hefjast á eftirfarandi tímum:
- 1. ágúst 2020 fyrir haustönn 2020,
- 5. janúar 2021 fyrir vorönn 2021 og
- 15. maí 2021 fyrir sumarönn 2021.
Hægt er að hafa samband við Menntasjóðinn og óska eftir aðstoð í gegnum heimasíðuna www.menntasjodur.is, í gegnum netfangið menntasjodur@menntasjodur.is eða í gegnum síma +354 560 4000.