Lán frá Menntasjóði námsmanna

Stúdentar geta sótt um lán hjá Menntasjóðnum í gegnum ,,Mitt Lán” á heimasíðu Menntasjóðsins (www.menntasjodur.is).
Þar er einnig hægt að fylgjast með stöðu umsókna, skoða lánsáætlun og sjá gátlista yfir gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.

Umsóknarfrestir fyrir skólaárið 2023-2024:

Lán fyrir haustmisseri 2023: til og með 15. október 2023

Lán fyrir vormisseri 2024: til og með 15. janúar 2024

Lán fyrir sumarmisseri 2024:  til og með 15. júní 2024

Útborganir framfærslulána

Greiðsla mánaðarlegra framfærslulána til stúdenta sem óska eftir samtímagreiðslum hefjast á eftirfarandi dagsetningum:

  • Á haustönn 2023 hefjast útborganir 1. október 2023
  • Á vorönn 2024 hefjast útborganir 1. febrúar 2024
  • Á sumarönn 2024 hefjast útborganir 1. júní 2024

Greiðsla framfærslulána til stúdenta sem óska eftir að fá lánið greitt eftir hverja önn hefjast að öllu jöfnu um miðjan mánuð á eftirfarandi tímum:

  • Fyrir haustönn 2023 hefjast greiðslur í janúar 2024
  • Fyrir vorönn 2024 hefjast greiðslur í  maí 2024
  • Fyrir sumarönn 2024 hefjast greiðslur í ágúst 2024


Útborganir skólagjaldalána

Greiðsla skólagjaldalána til stúdenta sem óska eftir fyrirframgreiðslu hefst að öllu jöfnu um miðjan mánuð á eftirfarandi tímum:

  • Fyrir haustönn 2023 hefjast greiðslur í ágúst 2023
  • Fyrir vorönn 2024 hefjast greiðslur í janúar 2024
  • Fyrir sumarönn 2024 hefjast greiðslur í maí 2024

Hægt er að hafa samband við Menntasjóðinn og óska eftir aðstoð í gegnum heimasíðuna www.menntasjodur.is, í gegnum netfangið menntasjodur@menntasjodur.is eða í gegnum síma +354 560 4000.