Stendur fyrir skemmtilegustu og hressilegustu verkefnum SHÍ ár hvert. Nefndin sér um skipulagningu og framkvæmd helstu félagsviðburða sem Stúdentaráð stendur fyrir og hefur gaman af. Stærstu viðburðir ársins eru Stúdentadagar sem eru í lok nýnemavikunnar og Októberfest sem haldin er í September. Auk þessa viðburða hefur heyrst að nefndin lumi á ýmsu öðru skemmtilegu og spennandi. Nefndin fundar reglulega og leggur mikið upp úr því að gleðja samstúdenta, með góðum móral, flippi og samheldni stúdenta HÍ.
Facebook: felogmennshi
Instagram: @felogmenn
Erna Lea Bergsteinsdóttir
Ástráður Stefánsson
Magnús Orri
Hilmar Adam Jóhansson
Alþjóðanefnd Stúdentaráðs tekur til meðferðar mál er varða hagsmuni erlendra stúdenta við HÍ og mál íslenskra stúdenta erlendis. Nefndin tekur á móti erlendum skiptinemum við HÍ þar sem þeim eru kynnt réttindi sín og hvert þeir geta leitað með spurningar. Alþjóðanefnd heldur einnig utan um tengiliðaverkefni sem gefur íslenskum nemendum og erlendum skiptinemum færi á að kynnast.
Instagram: @internationalcommitteeui
Emily Reise
Marcello Milanezi
Lísa Margrét Gunnarsdóttir
Björk Jónsdóttir
Urður Helga Gísladóttir
Jasmín Kristjánsdóttir
Fjármála- og atvinnulífsnefnd hefur nokkur af stærstu hagsmunamálum stúdenta Háskóla Íslands innan sinna vébanda. Nefndin tekur til meðferðar atvinnumál stúdenta auk tengsla þeirra við atvinnulífið. Markmið nefndarinnar er að skapa mikilvæga tengingu stúdenta við atvinnulífið, tengingu sem helst til framtíðar.
Fjármála- og atvinnulífsnefnd hefur því einnig á höndum sínum lánasjóðsmál stúdenta og leita leiða til að tryggja að stúdentar hafi lífsviðurværi yfir skólaárið. Fjármála- og atvinnulífsnefnd ber þungann af því að finna leiðir til að bæta starfsemi lánasjóðsins og bæta hag stúdenta. Stúdentaráð skipar einn fulltrúa í stjórn LÍN og hefur þannig bein áhrif úthlutunarreglur LÍN. Þessi fulltrúi vinnur í nánu samstarfi við fjármála- og atvinnulífsnefnd.
Nefndin lætur sig varða um öll mál er lúta að fjármálum- og atvinnumálum stúdenta. Ekkert er okkur óviðkomandi. Ef þú hefur hugmyndir til að bæta kjör stúdenta ekki hika við að hafa samband við nefndarmenn, sem munu taka öllum hugmyndum opnum örmum
Facebook: fjarmalaogatvinnulifsnefndshi
Instagram: @fjarmalaogatvinnulifsnefnd
Fjölskyldunefnd fer með hagsmunamál fjölskyldufólks og þeirra stúdenta sem eru foreldrar við Háskóla Íslands.
Henni er ætlað að gæta hagsmuna foreldra sem og barna þeirra. Nefndin berst fyrir því að sérstakt tillit sé tekið til foreldra í námi, hvað varðar námslán og fæðingarorlof sem og önnur mál sem koma að fjölskyldunni. Nefndin leggur til að mynda áherslu á að virkt eftirlit sé með því að ekki sé kennt í háskólanum eftir kl. 17 á daginn eða um helgar og að góð tenging sé á milli fjölskyldufulltrúa og Félagsstofnunar stúdenta. Að auki kemur nefndin að skipulagningu ýmissa námskeiða og uppákoma fyrir fjölskyldufólk í námi á borð við uppeldisnámskeið fyrir verðandi foreldra, íþróttaskóla og jólaball fyrir börnin.
Facebook: fjolskyldunefndshi
Instagram: @fjlskshi
Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs sér um að standa vörð um jafnrétti innan Háskóla Íslands og vekur athygli á því þegar pottur er brotinn í þeim málum. Samhliða jafnréttisnefnd er starfandi jafnréttisfulltrúi SHÍ sem starfar náið með nefndinni. Nefndin stuðlar að því að allir stúdentar háskólans séu settir undir sama hatt, burtséð frá kyni, bakgrunni, aldri, fötlun eða öðru.
Jafnréttisnefnd veitir Háskólanum aðhald og þrýstir á að jafnréttisáætlun HÍ í kynjajafnréttismálum sé framfylgt, stefnu Háskóla Íslands í málefnum fatlaðra frá 2002 og stefnu Háskóla Íslands gegn mismunum sé framfylgt. Nefndin gætir þess að umhverfi stúdenta hamli þeim ekki með því að þrýsta á að merkingar og aðgengi fyrir nemendur með fötlun sé eins og best verði á kosið. Formaður nefndarinnar á sæti í stjórn Greiningarsjóðs sem sér um að úthluta fjárhæð til styrktar nemendum HÍ með sértæk námsúrræði. Það er úthlutað úr sjóðnum á hverju misseri.
Nefndin vekur athygli á jafnréttismálum sjálfstætt og samstarfi við jafnréttisfulltrúa Háskóla Íslandsmeð skipulagningu á fyrirlestrum, kvikmyndasýningum, lifandi bókasafns og öðru sem vakið getur áhuga háskólastúdenta á jafnréttismálum í víðum skilningi.
Facebook: jafnrettisnefndshi
Instagram: @jafnrettishi
Bryndís Ólafsdóttir
Mars M. Proppé
Lenya Rún
Tinna Alicia
Kris Micah Kaneh Labarda
Kennslumálanefnd Stúdentaráðs tekur til meðferðar framkvæmd Kennslumálaþings SHÍ í samstarfi við kennslumálanefnd HÍ, gæðanefnd HÍ og Kennslumiðstöð HÍ ásamt því að kynna nám og kennslu við skólann.
Facebook: Kennslumálanefnd-SHÍ
Rebekka Karlsdóttir
kennslumalanefnd.shi@gmail.com
Jessý Jónsdóttir
Bjarnveig Björk Birkisdóttir
Harpa Stefánsdóttir
Lagabreytinganefnd Stúdentaráðs hefur það hlutverk að endurskoða lög Stúdentaráðs og Stúdentasjóðs og leggja fram tillögur til breytinga á þeim, ef þörf þykir. Nefndin skal líta til þess að lögin séu skýr, aðgengileg, samræmd og tryggi skilvirkni í störfum Stúdentaráðs.
Heimilt er að vísa lagabreytingartillögum til umsagnar í nefndinni.
Nefndin var stofnuð af Stúdentaráði veturinn 2017 – 2018.
Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Stúdentaráðs hefur það hlutverk að efla nýsköpunar- og frumkvöðlastarf meðal nemenda Háskóla Íslands. Nefndin vinnur náið með Icelandic Startups og kemur verkefnum þeirra á framfæri meðal háskólanema.
Nefndin hefur m.a. tekið að sér verkefni innan Gulleggsins og Student Talks.
https://www.facebook.com/nyskopunarnefnd
Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs sinnir umhverfismálum saman ber endurvinnslu, sjálbærnisstefnu Háskóla Íslands, samgöngumálum og skipulagsmálum tengdum háskólasvæðinu og byggingum FS.
Dæmi um verkefni umhverfis- og samgöngunefndar eru að taka til umfjöllunar skipulagsmál háskólasvæðisins, samgöngumál til og frá háskólasvæðinu og bygginga háskólans, framkvæmdir á vegum FS og annað sem varðar umhverfis- og samgöngumál stúdenta. Nefndin hefur það að markmiði að auka umhverfisvitund stúdenta með ýmsum viðburðum innan háskólans.
Instagram: @umsamshi
Urður Einarsdóttir
Guðrún Fríða Snorradóttir Wium
Sigurður Ragnarsson
Gunndís Eva Baldursdóttir
Egill Hermannsson