10. júní, 2022
Auglýst eftir fulltrúum stúdenta í nefndir háskólaráðs
Kæru stúdentar,
Samkvæmt 21. gr. laga Stúdentaráðs skal Stúdentaráð skipa fulltrúa stúdenta í nefndir háskólaráðs. Að þessu sinni er leitað að fulltrúa í skipulagsnefnd, tveimur fulltrúum í ráð um málefni fatlaðs fólks, auk áheyrnarfulltrúa í öryggisnefnd. Skipunartími í skipulagsnefnd og öryggisnefnd er til eins árs en í ráð um málefni fatlaðs fólks til þriggja ára.
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
- Áhugi á Stúdentaráði og málefnum stúdenta
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Virk þátttaka í háskólasamfélaginu er kostur
- Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur
Að auki er miðað við að allavegana annar fulltrúanna í ráði um málefni fatlaðs fólks komi úr hópi þeirra nemenda sem falla undir 1. mgr. 1. gr. reglna um sértæk úrræði í námi við Háskóla Íslands nr. 481/2010.
Stúdentaráð mun kjósa um fulltrúa í nefndirnar. Frekari upplýsingar um starfsemi nefndana má finna á heimasíðu Háskóla Íslands.
Áhugaöm eru beðin um að senda póst á shi@hi.is fyrir kl. 23:59 þann 17. júní næstkomandi. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynning á umsækjanda, lýsing á áhuga hans á tilteknu nefndarstarfi og reynslu sem hann telur að komi að gagni í nefndinni.