14. febrúar, 2022
Opið fyrir umsóknir í þriðju úthlutun Stúdentasjóðs
Búið er að opna fyrir umsóknir í þriðju úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki hér til 28. febrúar nk.. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum varðar frávísun umsóknar.
Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög og reglur hans. Greiningarstyrkir og framfærslustyrkir verða veittir í næstu úthlutun.
Spurningum skal vísað til Maríu Sólar Antonsdóttur, forseta sjóðsins, á netfangið studenasjodur@hi.is.