9. mars, 2023
Reglur um samskipti við kjósendur og önnur framboð
Stúdentaráð hefur samþykkt reglur sem munu gilda um samskipti við kjósendur og önnur framboð í komandi kosningum til Stúdentaráðs.
- Virtur verði í einu og öllu réttur kjósanda til leynilegra kosninga. Ekki skal undir neinum kringumstæðum krefja kjósanda um sönnun á kosningu eða að kjörseðill sé sýndur.
- Óheimilt er að halda viðburði á meðan kjörfundi stendur ef hætt er á að að réttur kjósenda til leynilegrar kosningar verði ekki virtur.
- Framboðum er óheimilt að leiðbeina kjósendum skipulega um að raða atkvæðum sínum til þess að skekkja úrslit kosninga og koma fleiri fulltrúum í Stúdentaráð en eðlilegt væri miðað við fjölda atkvæða til listans, sbr. 33. gr. laga Stúdentaráðs um framkvæmd kosninga.
- Heimilt er að dreifa kosningaefni innan veggja háskólans. Fylgja skal reglum háskólans við slíka dreifingu, m.a. með því að notast við þar til gerðar töflur og skilgreind svæði fyrir plaköt.
- Skipulögð dreifing kosningaefnis í byggingum háskólans á kjördögum er óheimil.
- Hvers kyns skemmdarverk á kosningaefni annarra framboða er óheimil.
- Dreifing á hvers kyns óhróðri eða meiðandi athugasemdum er óheimil.
Minniháttar brot eru þau brot sem ganga í berhögg við markmið um hátterni framboða án þess að teljast meiðandi og/eða af yfirlögðu ráði.
Meiriháttar brot fela í sér dreifingu á hvers kyns óhróðri, meiðandi athugasemdum eða einbeittan brotavilja gagnvart lögum SHÍ og/eða drengskaparheitum. Ef meiriháttar brot eiga sér stað mun kjörstjórn veita skriflega áminningu og birta hana á Facebook og/eða Twitter.
Unnið verður að því að leysa minniháttar brot án áminninga í lengstu lög. Ef minniháttar brot eiga sér ítrekað stað eftir tiltal mun kjörstjórn veita skriflega áminningu og birta hana á Facebook og/eða Twitter.
Listi yfir brot er ekki tæmandi. Kjörstjórn áskilur sér rétt til að bregðast við með þeim hætti sem hún telur viðeigandi ef ófyrirséð brot á almennri háttsemi eiga sér stað.
Samþykkt af Stúdentaráði 6. mars 2023.