4. mars, 2022
Stúdentaráðsfundur 10. mars 2022
Fimmtudaginn 10. mars fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í L-201.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Óski almennur stúdent eftir að sækja fundinn, skal senda beiðni þess efnis á shi@hi.is til að geta sent Teams fundarboð.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Félagsstofnun stúdenta (kynning og umræður) 17:25-17:45
- Fjárhagsáætlun Stúdentaráðs 2021-2022 (kynning og umræður) 17:45-18:00
- Hlé 18:00-18:10
- Stefna Stúdentaráðs (kynning og umræður) 18:10-18:40
- Önnur mál 18:40-18:50
- Fundi slitið 18:50