9. september, 2021
Stúdentaráðsfundur 15. september 2021
Miðvikudaginn 15. september fer Stúdentaráðsfundur fram í L-101 kl 17:00.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Kynning á Tengslakönnun meðal nemenda við Háskóla Íslands 17:25-17:55
- Undirnefnd umhverfis- og samgöngunefndar 17:55-18:10
- Hlé 18:10-18:20
- Niðurstöður stefnumótunarferðar – framkvæmdaáætlanir fastanefnda (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:20-19:35
- Önnur mál 19:35-19:45
- Fundi slitið 19:45