11. nóvember, 2022
Stúdentaráðsfundur 16. nóvember 2022
Miðvikudaginn 16. nóvember fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu H-205 í Stakkahlíð.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:30
- Tilnefningar í kjörstjórn (atkvæðagreiðsla) 17:30-17:45
- Stefna Stúdentaráðs í tengslum við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna 17:45 – 18:05 (atkvæðagreiðsla)
- Hlé 18:05-18:15
- Tillaga um jafningjastuðning á stúdentagörðunum 18:15-18:25 (atkvæðagreiðsla)
- Tillaga um aukna notkun persónufornafna á Canvas 18:25-18:35 (atkvæðagreiðsla)
- Tillaga um markvissa vinnu til að auka kosningaþátttöku til Stúdenta- og háskólaráðs 18:35-18:45 (atkvæðagreiðsla)
- Fjármál Stúdentaráðs 18:45-18:55
- Önnur mál 18:55-19:05
- Bókfærð mál
Fundi slitið