9. desember, 2022
Stúdentaráðsfundur 15. desember 2022
Fimmtudaginn 15. desember fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu HT-101.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
-
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Fjárveitingar til Háskóla Íslands 17:25-17:45
- Kynning á Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS) 17:45-18:05
- Hlé 18:05-18:15
- Tillaga um að frídagar stúdenta séu tryggðir 18:15-18:25 (atkvæðagreiðsla)
- Tillaga um aukna þjónustu Hámu í Eirberg, Læknagarði og Stakkahlíð 18:25-18:35 (atkvæðagreiðsla)
- Önnur mál 18:35-18:45
- Bókfærð mál
- Fundi slitið