12. ágúst, 2021
BREYTING: Stúdentaráðsfundur 25. ágúst 2021
Miðvikudaginn 25. ágúst fer Stúdentaráðsfundur fram í l-101 kl 17:00.
ATH. Fundinum hefur verið frestað.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Lög Stúdentasjóðs (kynning og atkvæðagreiðsla) 17:25-17:40
- Lög Stúdentaráðs (Umræður og atkvæðagreiðsla) 17:40-17:50
- Skipan í stjórn Stúdentasjóðs (atkvæðagreiðsla) 17:50-18:00
- Vísindaferð í Stúdentaráð (atkvæðagreiðsla) 18:00-18:15
- Hlé 18:15-18:25
- Niðurstöður stefnumótunarferðar (nefndir) 18:25-19:25
- Önnur mál 19:25 – 19:35
- Fundi slitið 19:35