14. janúar, 2022
Stúdentaráðsfundur 20. janúar 2022
Fimmtudaginn 20. janúar fer Stúdentaráðsfundur fram á Teams kl 17:00.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Óski almennur stúdent eftir að sækja fundinn, skal senda beiðni þess efnis á shi@hi.is til að geta sent Teams fundarboð.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Skýrsla Stúdentaráðs um húsnæðismál (Kynning og umræður) 17:25-18:00
- Stefna Stúdentaráðs (Kynning og umræður) 18:00-18:20
- Landsþing LÍS (Umræður) 18:20-18:35
- Hlé 18:35-18:45
- Fjárhagsáætlun Stúdentaráðs 2021-2022 (Kynning og umræður) 18:45-19:00
- Tillaga um Matarspor – kolefnisspors reiknivél fyrir matvæli (atkvæðagreiðsla) 19:00-19:15
- Tillaga um fjárhagslegan stuðning Háskóla Íslands við Stúdentaleikhúsið (atkvæðgreiðsla) 19:15-19:30
- Önnur mál 19:30-19:40
- Fundi slitið 19:40