15. október, 2021
Stúdentaráðsfundur 20. október 2021
Miðvikudaginn 20. október fer Stúdentaráðsfundur fram í L-101 kl 17:00.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Stefna Háskóla Íslands fyrir tímabilið 2021-2026 (Kynning og umræður) 17:25-18:15
- Nýtt útlit kynningarefnis Háskóla Íslands (Kynning og umræður) 18:15-18:45
- Hlé 18:45-18:55
- Fjárhagsáætlun Stúdentaráðs 2021-2022 (kynning og umræður) 18:55-19:10
- Tillaga vegna sjúkra- og endurtökuprófa við Háskóla Íslands (atkvæðagreiðsla) 19:10-19:25
- Önnur mál 19:25-19:35
- Fundi slitið 19:35
- Bókfærð mál