15. september, 2023
Stúdentaráðsfundur 20. september 2023
Miðvikudaginn 20. september 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu TH 103.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs þann 22. ágúst borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Eftirstandandi tilnefningar í nefndir og sviðsráð Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 17:10-17:15
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:15-17:30
- Kynning á stöðu mála í lögbundinni endurskoðun laga um Menntasjóðs Námsmanna – Gísli Laufeyjarson Höskuldsson, Lánasjóðsfulltrúi SHÍ 17:30-17:50
- Ársreikningur SHÍ 2022-2023 kynntur – Guðmundur Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri SHÍ 17:50-18:00
- Lagabreytingar (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:00-18:30
Hlé 18:30-18:40 - Kynning á könnun um fjárhagsstöðu stúdenta – Katrín Björk Kristjánsdóttir og María Sól Antonsdóttir 18:40-18:55
- Niðurstöður stefnumótunardags – framkvæmdaáætlanir fastanefnda (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:55-19:20
- Önnur mál 19:20-19:30
- Bókfærð mál
- Fundi slitið 19:30