15. july, 2021
Stúdentaráðsfundur 21. júlí 2021
Miðvikudaginn 21. júlí fer Stúdentaráðsfundur fram í Odda-201 kl 17:00.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:20
- Kynning á Kennsluakademíu og Spretti 17:20-18:05
- Tillaga um viðbrögð Stúdentaráðs vegna þjónustu næturstrætó (atkvæðagreiðsla) 18:05-18:20
- Hlé 18:20-18:30
- Verklagsreglur Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 18:30-18:40
- Skipan fulltrúa stúdenta í stjórn Félagsstofnunar stúdenta (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
- Önnur mál 18:50-19:00
- Bókfærð mál