15. júní, 2023
Stúdentaráðsfundur 21. júní 2023
Miðvikudaginn 21. júní 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu VHV-007
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Dagskrá fundarins:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð Skiptafundar Stúdentaráðs 23. maí borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Eftirstandandi tilnefningar í nefndir og sviðsráð Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 17:10-17:15
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:15-17:25
- Kynning á stefnu háskólans: HÍ26 frá Steinunni Gestsdóttur 17:25 – 17:40
- Fundarhlé 17:40 – 17:50
- Kynning um notendamiðaða stafræna þjónustu frá Guðnýju Benediktsdóttur 17:50 – 18:05
- Kynning og umræður um lækkun kosningaaldurs með LUF – Landssambandi ungmennafélaga 18:05-18:30
- Önnur mál 18:30-18:45
- Fundi slitið 18:45