17. ágúst, 2023
Stúdentaráðsfundur 22. ágúst 2023
Þriðjudaginn 22. ágúst 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu TH 104
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
-
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs þann 21. júní borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:10-17:30
- Minnisblað um Oktoberfest 17:30-17:40
- Kynning um notendamiðaða stafræna þjónustu frá Guðnýju Benediktsdóttur 17:40-17:55
- Skipun fulltrúa stúdenta í eftirfarandi nefndir háskólaráðs: málnefnd, vísindanefnd auk áheyrnarfulltrúa í öryggisnefnd (atkvæðagreiðsla) 17:55-18:05
- Kjör í stjórn í Stúdentasjóðs (atkvæðagreiðsla) 18:05-18:15
- Hlé 18:15-18:30
- Niðurstöður stefnumótunardags – framkvæmdaáætlanir fastanefnda (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:30-19:20
- Önnur mál 19:20-19:25
- Fundi slitið 19:25