20. október, 2022
Stúdentaráðsfundur 25. október 2022
Þriðjudaginn 25. október fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu O-202.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
- Fundur settur
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:30
- Félagsstofnun stúdenta (kynning og umræður) 17:30-18:20
- Hlé 18:20-18:30
- Áherslur SHÍ í tengslum við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna 18:30 – 19:10 (atkvæðagreiðsla)
- Tillaga um að Háskóli Íslands lýsi yfir neyðarástandi í loftslagsmálum 19:10-19:20 (Atkvæðagreiðsla)
- Tillaga um undirnefnd umhverfis- og samgöngunefndar Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 19:25-19:30
- Önnur mál 19:30-19:35
- Bókfærð mál
- Fundi slitið