1. mars, 2023
Stúdentaráðsfundur 8. mars 2023
Miðvikudaginn 8. mars fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:00 í stofu L-101
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Dagskrá fundarins:
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:20
- Kynning á verkefninu Sprettur 17:20 – 17:35
- Kynning á fjarnámi við HÍ 17:35 – 17:55
- Hlé 17:55 – 18:05
- Tillaga um skipan þingfulltrúa á landsþingi Landssamtaka íslenskra stúdenta (atkvæðagreiðsla) 18:05 – 18:15
- Lagabreytingartillögur á lögum Stúdentaráðs 18:15-19:00 (atkvæðagreiðsla)
- Önnur mál 19:00 – 19:10
- Bókfærð mál
- Fundi slitið