4. júní, 2021
Stúdentaráðsfundur 9. júní 2021
Miðvikudaginn 9. júní fer Stúdentaráðsfundur fram í Odda-101 og á Teams kl 17:00.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Óski almennur stúdent eftir að sækja fundinn í gegnum Teams skal senda beiðni þess efnis á shi@hi.is.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá
- Fundur settur 17:00
- Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:00-17:05
- Tilkynningar og mál á döfinni 17:05-17:25
- Kynning á Aurora samstarfinu 17:25-18:05
- Verklagsreglur Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 18:05-18:25
- Hlé 18:25-18:35
- Tillaga um skipun starfshóps vegna Alþingiskosninga 2021 (atkvæðagreiðsla) 18:25-18:40
- Skipun fulltrúa stúdenta í gæðanefnd háskólaráðs (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
- Önnur mál 18:50-19:00