3. október, 2023
Stúdentaráðsfundur 9. október 2023
Mánudaginn 9. október 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu TH 101.
Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.
Fundardagskrá:
- Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
- Lagabreytingar (umræður og atkvæðagreiðsla) 17:05-18:25
- Önnur mál 18:25-18:30
- Fundi slitið 18:30