29. mars, 2021
Niðurstöður kosninga til Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Síðastliðinn miðvikudag og fimmtudag, 24. og 25. mars, fóru fram kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2021-2022. Stúdentar kusu á milli framboðslista á sínu fræðasviði og fá fulltrúar ráðsins sæti í samræmi við hlutfall kosninga.
Stúdentaráð samanstendur af 17 fulltrúum og eins og kerfið er í dag eru 3 fulltrúar af hverju fræðasviði nema 5 fulltrúar á Félagsvísindasviði. Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, fékk alls 16 fulltrúa kjörna en Vaka, hagsmunafélag stúdenta, fékk 1 fulltrúa.
Kosningin fór fram á Uglunni og var kjörsókn 26,46% en nánari tölur má finna hér undir lagaleg skjöl.
Kjörnu fulltrúarnir raðast á eftirfarandi máta:
Félagsvísindasvið:
1. Rebekka Karlsdóttir (Röskva)
2. Erna Lea Bergsteinsdóttir (Röskva)
3. Stefán Kári Ottósson (Röskva)
4. Ellen Geirsdóttir Håkansson (Vaka)
5. Kjartan Ragnarsson (Röskva)
Heilbrigðisvísindasvið:
1. Ingunn Rós Kristjánsdóttir (Röskva)
2. Margrét Jóhannesdóttir (Röskva)
3. Kristján Guðmundsson (Röskva)
Hugvísindasvið:
1. Jóna Gréta Hilmarsdóttir (Röskva)
2. Anna María Björnsdóttir (Röskva)
3. Sigurður Karl Pétursson (Röskva)
Menntavísindasvið:
1. Rósa Halldórsdóttir (Röskva)
2. Rannveig Klara Guðmundsdóttir (Röskva)
3. Erlingur Sigvaldason (Röskva)
Verkfræði- og náttúruvísindasvið:
1. Ingvar Þóroddsson (Röskva)
2. Inga Huld Ármann (Röskva)
3. Helena Gylfadóttir (Röskva)
Skrifstofa Stúdentaráðs óskar nýkjörnum Stúdentaráðsliðum innilega til hamingju með kjörið og heilla í starfi.