3. desember, 2021
Vertu eldklár á þínu heimili!
Árlegt forvarnarátaki HMS og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór í gang 1. desember og mun vara út desember.
Unnið hefur verið viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff, háskólanema, sem brenndist alvarlega þegar eldsvoði kom upp í íbúð í Mávahlíð árið 2019 og deilir hún lífsreynslu sinni með okkur til að efla umræðuna á sviði forvarna. Stúdentaráð deilir gjarnan skilaboðunum áfram.
Verum ELDKLÁR saman og uppfyllum atriðin á gátlistanum hér fyrir neðan:
- Reyksynjara í öll herbergi
- Heimilisfólk þekki flóttaleiðir út af heimilinu
- Slökkvitæki eiga að staðsett við útgang og flóttaleiðir
- Eldvarnateppi aðgengileg og sýnileg í eldhúsi
Myndbandið er hægt að nálgast hér.
Viðtal við Sólrúnu Öldu Waldorff from Húsnæðis- og mannvirkjastofnun on Vimeo.